Áskriftarskilmálar Prentvæn útgáfa
ÞJÓNUSTUSKILMÁLAR VEGNA VEF- OG TÖLVUPÓSTHÝSINGARÞJÓNUSTU Hýsingaraðila

1 SAMÞYKKT Á ÞJÓNUSTUSKILMÁLUM

1.    Þú samþykkir hér með, fyrir þína eigin hönd eða fyrir hönd, annars einstaklings, fyrirtækis eða persónu að lögum sem þú mátt skuldbinda (hér eftir kallað "áskrifandi"), að lúta eftirfarandi þjónustuskilmálum. Samþykki skilmálanna er skilyrði þess að áskrifandi
ÞJÓNUSTUSKILMÁLAR VEGNA VEF- OG TÖLVUPÓSTHÝSINGARÞJÓNUSTU
Vefhysing.is (hér eftir kallað "hýsingaraðili.hýsingaraðila"),

1 SAMÞYKKT Á ÞJÓNUSTUSKILMÁLUM

1.    Með því að haka í til samþykktar þessara skilmála samþykkir áskrifandi að lúta eftirfarandi þjónustuskilmálum. Samþykki skilmálanna er skilyrði þess að áskrifandi megi nota þjónustu hýsingaraðila., en með þjónustu er átt við net, vélbúnað, hugbúnað og tækniaðstoð hýsingaraðila. Áskrifandinn samþykkir að lúta öllum þeim skilyrðum sem fram koma í skilmálum þessum. Skilmálarnir eru samningur milli hýsingaraðila. og áskrifandans og taka gildi við samþykki áskrifandans.
2.    Áskrifandi lýsir yfir og ábyrgist að hann sé fullra átján ára að aldri, fjár síns ráðandi og að fullu sjálfráða ef hann er einstaklingur, en sé áskrifandi fyrirtæki eða persóna að lögum að hann sé til þess bær að taka á sig þær skuldbindingar sem skilmálar þessir greina. Ennfremur lýsir áskrifandi því yfir og ábyrgist að allar upplýsingar sem hann hefur gefið hýsingaraðila. séu réttar, fullnægjandi og í gildi og að hann muni framvegis ætíð gefa hýsingaraðila. upplýsingar sem eru réttar, fullnægjandi og í gildi við endurnýjun og skráningu þjónustu. Áskrifandi lýsir yfir og ábyrgist að hann muni upplýsa hýsingaraðila. um breytingar á öllum upplýsingum til að hýsingaraðila. Hafi ætíð réttar, fullnægjandi og gildandi upplýsingar. Viðkomandi lögráðamenn geta gert samning við hýsingaraðila. fyrir hönd ólögráða eða ófjárráða einstaklinga og þurfa þá að hafa samþykkt notkun hins ólögráða eða ófjárráða á þjónustu hýsingaraðila. Lögráðamaður tekur á sig allar skyldur og ábyrgð sem leiða af þeim þjónustusamningi sem við á hverju sinni og þessum þjónustuskilmálum.
3.    hýsingaraðila. mun kappkosta að veita áskrifendum sínum afbragðsgóða þjónustu á sviðum vef- og tölvupósthýsingar, sýndarþjónareksturs og nafnaþjónareksturs og fylgjast ávallt vel með öllum nýjungum á þeim sviðum þannig að þjónustan sé alltaf eins góð og mögulegt er. Vegna hraðrar þróunar og mikilla breytinga á tækni- og lagaumhverfi , og vegna breytilegra þarfa einstakra notenda sem og notenda almennt, áskilur hýsingaraðila. sér þann rétt til að breyta, bæta við eða fjarlægja hvern einstakan eða alla hluta þessara þjónustuskilmála hvenær sem er, fyrirvaralaust og án viðvörunar.
4.    Áskrifendur geta séð gildandi útgáfu þessara skilmála hverju sinni á www.vefhysing.is  tengill  Áskriftar skilmálar.  Öll notkun á þjónustu hýsingaraðila. Eftir breytingar, viðbætur, eða fjarlægingu á þessum skilmálum, í heild eða að hluta, felur í sér samþykki áskrifandans á öllum slíkum breytingum, viðbótum eða fjarlægingu. Ef áskrifandi samþykkir ekki slíkar breytingar, viðbætur eða fjarlægingu á skilmálum stendur honum það úrræði til boða að segja upp áskrift sinni samkvæmt þriðja hluta þessara skilmála.

2. TÍMABIL - GREIÐSLUR - ENDURNÝJUN ÞJÓNUSTUSAMNINGS

1.    Samningssamband milli hýsingaraðila. og áskrifanda kemst á þegar áskrifandi samþykkir þessa skilmála og lýkur með þeim hætti sem lýst er í gr. 2.04 og 3.01.
2.    Áskrifandi samþykkir að greiða öll viðeigandi þjónustugjöld samkvæmt verðskrá eða í samræmi við tilboð sem í gildi eru þegar pöntun eða endurnýjun á þjónustusamningi er gerð.
3.    Fjórtán dögum áður en þjónustusamningur rennur út, er hýsingaraðila. heimilt að endurnýja þjónustusamning áskrifanda til jafn langs tíma og áskrifandi valdi í upprunalegri pöntun sinni á þjónustu hýsingaraðila. Í því tilviki gildir almenn gjaldskrá hýsingaraðila. en ekki þau sérstöku tilboð sem hýsingaraðila. kann að hafa í boði á þeim tíma sem endurnýjun á sér stað og gjald fyrir tímabilið verður innheimt með þeim hætti er áskrifandi valdi upprunalega sem greiðsluaðferð fyrir þjónustu hýsingaraðila. Áskrifandi fellst á að hýsingaraðili. framkvæmi sjálfvirka endurnýjun þjónustusamnings með þeim hætti er að ofan greinir. Áskrifandi fellst á að endurnýjun þjónustusamnings sé á ábyrgð áskrifanda sjálfs og að á hýsingaraðila.  hvíli engin skylda til sjálfkrafa endurnýjunar þjónustusamnings. Áskrifandi fellst á að ef hýsingaraðila. nýtir ekki heimild sína til sjálfkrafa framlengingar og áskrifandi hefur ekki sjálfur endurnýjað áskrift sína, þá falli hún, og þjónusta henni tengd, niður á þeim degi er gildandi áskrift fellur úr gildi.
4.    Til að stöðva sjálfvirka endurnýjun þjónustusamnings þarf áskrifandi að tilkynna  hýsingaraðila um það sextán dögum áður en áskrift fellur úr gildi með tölvupósti á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. með efnislínunni (Subject header) "Stöðvið sjálfvirka endurnýjun áskriftar",  og í texta þess tölvupóstskeytis skal áskrifandi gefa nánari upplýsingar um áskriftina. hýsingaraðila. fellst á að berist slíkur tölvupóstur á tölvupóstfangið innheimta@hýsingaraðila a.m.k. fimmtán dögum áður en áskrift rennur út verði áskrifandi ekki krafinn um frekari áskriftargjöld vegna viðkomandi áskriftar og að þjónusta falli niður á þeim tíma sem áskrift rennur út.
5.    Ef áskrifandi er ekki einstaklingur heldur fyrirtæki, félag eða  persóna að lögum lofar sá sem gerir eða endurnýjar þjónustusamning fyrir hönd slíks áskrifanda að hann hafi umboð og leyfi til að skuldbinda áskrifandann með þeim hætti er þessir skilmálar greina.

3. UPPSÖGN ÞJÓNUSTUSAMNINGS – ENDURGREIÐSLUR

1.    hýsingaraðila. veitir 15 daga endurgreiðsluábyrgð á allri seldri þjónustu, nema skráningu léna og sölu á SSL skírteinum. Þetta þýðir að ef afturköllun á þjónustubeiðni berst hýsingaraðila. innan 15 daga frá pöntun mun hýsingaraðili. endurgreiða áskrifanda þjónustugjöld er áskrifandi hefur reitt af hendi. Hafi áskrifandi greitt hýsingaraðila. fyrir skráningu léns, heldur áskrifandi réttindum vegna þeirrar skráningar, enda er engin endurgreiðsluábyrgð á gjöldum vegna skráningar léna.
2.    Áskrifandi má segja upp áskrift sinni hvenær sem er á samningstímanum eftir fyrstu 15 daga samningsins og fyrir sjálfvirka endurnýjun þjónustusamnings. Mun þá hýsingaraðili. endurgreiða honum þau gjöld fyrir alla þá almanaksmánuði samningstímans sem ekki eru byrjaðir að líða þegar uppsögn berst. Þetta endurgreiðsluloforð á ekki við um gjöld vegna lénaskráninga eða sölu á SSL skírteinum, sbr. gr. 3.01 þessara skilmála.
3.    Áskrifandi skal tilkynna uppsögn á áskrift sinni á netfangið innheimta@hýsingaraðila.
4.    Ef áskrifandi fer ekki að ofangreindum leiðbeiningum um uppsögn á áskrift sinni er áskrifandi ábyrgur fyrir 5000 kr. Vinnugjaldi vegna bókhaldsvinnu.

4. HUGVERKARÉTTINDI OG VIÐSKIPTALEYNDARMÁL

1.    Skilmálar þessir veita áskrifanda engin réttindi tengd hugverkaréttindum hýsingaraðila. er tengjast tækni, merkjum eða vörumerkjum hýsingaraðila. hýsingaraðila. og áskrifandi binda það fastmælum að hvorugur aðilinn muni á nokkurn hátt, beint eða óbeint, reyna að komast að frumþulum, viðskiptaleyndarmálum eða öðrum málefnum hins.

5. ÖRYGGI OG EIGNARHALD

1.    Áskrifandi er að fullu ábyrgur fyrir varðveislu og notkun allra auðkenna sem hýsingaraðila. afhendir honum, s.s. lykilorðum, notendanöfnum o.fl. Þá er áskrifandi jafnframt ábyrgur fyrir allri notkun á þeim afleiðingum af notkun þeirra. Jafnframt er áskrifandi ábyrgur fyrir allri notkun á þeim lénum sem eru á hans vegum á kerfum hýsingaraðila. Áskrifandi lofar að láta hýsingaraðila. Vita tafarlaust ef grunur vaknar um að auðkennisupplýsingar hafi mögulega komist í hendur óviðkomandi, ef trúnaðaröryggi auðkennisupplýsinga er með einhverjum hætti ógnað eða ef grunur vaknar um óheimila notkun á þjónustu og kerfum hýsingaraðila. hýsingaraðila. verður ekki gert ábyrgt fyrir skaða eða tjóni sem hljótast kann af notkun auðennisupplýsinga sem afhentar hafa verið áskrifanda.
2.    Þegar stofnað er til þjónustusamnings milli áskrifanda og hýsingaraðila. verða færðar til bókar eftirfarandi upplýsingar frá áskrifanda: 1) Nafn áskrifanda, 2) virkt tölvupóstfang áskrifanda, 3) Notendanafn sem áskrifandi kann að velja sér 4) Aðgangsorð notanda 5) Virkt símanúmer áskrifanda og  6) Greiðsluupplýsingar, þ.e.a.s. heimilisfang, upplýsingar um greiðslumiðil, o.s.frv., í samræmi við lög um meðhöndlun slíkra upplýsinga.
3.    Verði farið fram á afhendingu aðgangsupplýsinga mun hýsingaraðila. ekki afhenda slíkar upplýsingar nema viðkomandi leggi fram eftirfarandi upplýsingar: a) Nafn áskrifandans sem um ræðir, b) Tölvupóstfang áskrifandans eins og það er í bókum hýsingaraðila., c) Notendanafn áskrifandans, d) Greiðsluupplýsingar áskrifandans. Einnig mun hýsingaraðila. afhenda aðgangsupplýsingar þeim er framvísar dómsúrskurði um slíka afhendingu.
4.    Áskrifandinn fellst á ofangreint fyrirkomulag um aðgengi að aðgangsupplýsingum og leysir hýsingaraðila. undan allri ábyrgð á skaða sem verða kann vegna þess að hýsingaraðili. framfylgir fyrirkomulaginu.

6. PERSÓNUUPPLÝSINGAR, UPPLÝSINGA- OG PERSÓNUVERND

1.    hýsingaraðila. lofar að vernda upplýsingar, þ.á.m. persónuupplýsingar um áskrifanda, með þeim ráðum sem tiltæk eru innan eðlilegra kostnaðarmarka.
2.    Áskriftarupplýsingar eru sendar dulkóðaðar yfir internetið þegar áskriftarpöntun er gerð.
3.    hýsingaraðili. lofar að afhenda ekki þriðja aðila upplýsingar um áskrifanda, nema skv. lögum, dómsúrskurði eða  í þeim tilvikum sem nauðsynlegt er að fá þriðja aðila til að rannsaka möguleg brot á þessum skilmálum eða öðrum samningum milli hýsingaraðila. og áskrifanda. hýsingaraðila. mun ekki afhenda þriðja aðila upplýsingar til notkunar við markaðssetningu vöru eða þjónustu.

7. FYRIRKOMULAG Í DEILDRI HÝSINGU

1.    Vefhýsing hýsingaraðila. er svokölluð deild hýsing, e. Shared hosting service. Það þýðir að margir áskrifendur deila með sér vélbúnaði og/eða sýndarvélbúnaði.  Vefhýsingarþjónustu hýsingaraðila. er ætlað að uppfylla vefhýsingarþarfir einstaklinga og smærri félaga og fyrirtækja, en ekki þarfir fjölmiðla eða stærri fyrirtækja sem þurfa aðgang að mikilli og stöðugri kerfisgetu, vegna vef- eða póstrekstrar síns.  Hýsingaraðila.  áskilur sér allan rétt til að færa þjónustu áskrifanda milli véla og/eða sýndarvéla til að tryggja jafnvægi í notkun vélbúnaðar, eða í hverjum þeim öðrum tilgangi sem hýsingaraðila. álítur nauðsynlegan eða hagkvæman.
2.    hýsingaraðila. áskilur sér allan rétt til að slökkva á eða hamla notkun á þjónustu áskrifanda, tímabundið eða endanlega, ef hýsingaraðila. álítur að:
1)    notkun áskrifanda á þjónustunni valdi, eða geti valdið, truflunum á rekstri þjónustu annarra notenda í deildri hýsingu,
2)    vefur eða þjónusta áskrifanda hafi verið "hökkuð" eða sé af einhverjum ástæðum undir stjórn annarra en áskrifanda sjálfs,
3)    að verið sé að brjóta lög eða siðferðisviðmið sem hýsingaraðila. telur eðlilegt að gera kröfu um að virt séu af áskrifendum hverju sinni. Ef hýsingaraðili. ákveður að stöðva þjónustu endanlega gilda ákvæði  gr. 3.02 um endurgreiðslu á hýsingargjöldum.

8. ÓHEIMIL NOTKUN VEFHÝSINGARÞJÓNUSTU
1.    Útsendingar á ruslpósti, (unsolicated commercial email) eru bannaðar á þjónum hýsingaraðila. og leiða til tafarlausrar stöðvunar allrar þjónustu áskrifanda. Þetta á við um allan fjöldapóst á póstlista eða sambærilega hópa þar sem móttakendur hafa  ekki gefið samþykki sitt fyrir sendingunum, að mati hýsingaraðila., eða ef ómögulegt eða torvelt er fyrir móttakendur að segja sig af slíkum lista, einnig að mati hýsingaraðila.
2.    Bannað er að bjóða, selja eða tengja við aðrar vefsíður sem bjóða, selja eða sýna eftirfarandi varning: a) Ávana- eða fíkniefni og/eða vörur eða þjónustu því tengdar, b) Vopn, c) Höfundarréttarvarið efni sem áskrifandi hefur ekki rétt til að bjóða eða selja, d) upplýsingar til að brjóta höfundarrétt eða vörumerkjaréttindi annarra, e) upplýsingar til að framleiða, búa til eða útvega ólöglegan varning eða vopn, f) klámefni eða kynlífsvarning, g) skráardeilingu h) annað ólöglegt, skaðlegt eða siðferðislega ámælisvert efni eða upplýsingar, að mati hýsingaraðila.
3.    hýsingaraðila. áskilur sér fullan og skilyrðislausan rétt til að meta hvort lokað verði á þjónustu til áskrifanda, með eða án fyrirvara, ef 1984. ehf. álítur efni það sem áskrifandi vistar ólöglegt, siðlaust eða skaðlegt. Eingöngu mat hýsingaraðila. gildir í þessum efnum. Áskrifandi afsalar sér öllum bótakröfum á hendur hýsingaraðila. Vegna mögulegs tjóns sem ákvörðun tekin á þessum forsendum kann að valda honum.

12. YFIRLÝSING UM TAKMÖRKUN ÁBYRGÐAR

1.    Áskrifandi, skilur og fellst á að þjónusta sú, er hýsingaraðila. lofar að veita, er veitt eftir bestu getu starfsmanna hýsingaraðila. á hverjum tíma, án nokkurrar ábyrgðar af hálfu hýsingaraðila. um gæði, áreiðanleika, hraða, villuleysi eða virkni. Áskrifandi fellst á þetta fyrirkomulag og afsalar sér öllum bótakröfum á hendur hýsingaraðila.  sem kunna að stofnast af völdum villna, bilana, aðgengisskorts, gagnataps, minnkaðs hraða eða skorts á virkni þeirrar þjónustu sem hýsingaraðila veitir. Gildir þetta án tillits til sakar starfsmanna hýsingaraðila


13. VARNARÞING OG LÖG

1.    Um skilmála þessa fer að íslenskum lögum. Mál sem kunna að rísa út af þeim skal reka fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.